12.4.2010 | 16:29
Segðu af þér Bjarni og taktu Þorgerði með þér.
Fólkið sem er í forystu stjórnmálaafls einsog Sjálfstæðisflokknum og flækist innaní lánastarfsemi bankanna ætti að hafa siðferði til þess að segja af sér og biðjast afsökunar. Trúverðugleikinn er löngu farinn af leiðtogum Sjálfstæðisflokksins og skýrsla rannsóknarnefndarinnar tekur þar af allan vafa. Fólk sem er svona samtvinnað inní fjárreiður bankanna getur ekki tekið skynsamar og ígrundaðar ákvarðanir, þjóðinni til heilla.
|
Stjórnmálamenn rísi undir ábyrgð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2010 | 20:13
REI hópurinn óbreyttur
En hvað þetta stærsta sveitafélag landsins hefði þurft að fá öflugra fólk í forystu eina "hægri" flokks landsins. Þarna er á ferðinni gamli klíkuhópur Davíðs og Björns, REI- snillingar, enn og aftur, guð blessi íSLAND.
|
Áslaug komin í 7. sæti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.11.2009 | 22:14
Mér finnst að Davíð ætti að vera þar líka
Davíð var nú einn af höfundum DeCode, gagnagrunnsins og ríkisábyrgðar á félagið erlendis. Af hverju fær Davíð ekki að vera í stjórn einsog Kári?
|
Kári áfram hjá ÍE |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.10.2009 | 17:52
Höldum áfram, hættum að Carnival'ast
Hvaða skoðun hafa þeir sem komu þjóðinni í þetta klandur, sbr. annar ritstjóri þessa blaðs? Hefur fólk enga sómatilfinningu gagnvart landinu sem fólkið treysti því til að stjórna? Það er þvílík Carnival stemming í Valhöll þar sem hver höndin er uppá móti hverri annarri, engin raunhæf úrræði sýnd og trúverðugleikinn hjá formanni og varaformanni ekki mikill því þetta fólk sat í efstu sætum þegar ráðabrugg um þjóðargjaldþrot var blandað. Það þarf að hleypa nýju fólki inn sem sér útfyrir klíkuskap og vinatengsl núverandi stjórnar Sjálfstæðisflokksins og kemur með raunhæfar hugmyndir svo sporna megi við frekari þjóðarnýtingu Íslands. Það sárvantar fólk með hagfræðiþekkingu og heilindi inní raðir hægri manna og líklega sálfræðinga til þess að afhjaravæða hugmyndafræði Sjálfstæðisflokkinn. Sjá sjálfstæðismenn ekki brýna nauðsyn þess að höggva á hnútinn með Icesave og halda áfram að koma hjólum atvinnulífsins í gang? Snýst þetta bara um að komast í þægilegt sæti fyrir sig og sína, ekki að stýra landinu?
|
Lengra varð ekki komist |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2009 | 21:21
Hið rétta andlit Framsóknar
Það kemur ekkert gott úr röðum Framsóknar nema helst að Magnús skuli skammast sín og koma sér í burtu áður en hann veldur enn frekara tjóni á landinu sínu. Svona hyski á að krúnuraka, tjarga og fiðra, öðrum til viðvörunar. Þiggur laun hjá fólkinu í landinu og vinnur síðan þvert á hagsmuni þjóðar sinnar, vísvitandi. Verðum við ekki að fara að spyrja okkur sjálf hvort siðleysið arfberist hjá Framsóknarmönnum eða hvort siðleysingar safnist frekar þar saman og hvort svoleiðis samkunda sé beinlínis ekki ólögleg þar sem hún vinnur gegn velferð lands og þjóðar?
|
Fer fram á lausn frá störfum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.3.2009 | 09:01
The right to Bear Arms
|
Blóðbað í Alabama |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 27.5.2009 kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.2.2009 | 17:42
Upplýsingar eru slæmar
Maður þarf að fá áfallahjálp eftir að hlusta á menn einsog Sigurð Kára, að upplýsingar og aðvaranir um efnahagsmál séu af hinu vonda, betra að ganga fjallið með bundið fyrir augun og detta þegar komið er framá hengiflugið, guð minn góður, þetta eru þingmenn með próf úr Háskóla Íslands? Er þetta fólk ennþá á bleiku skýi þrátt fyrir allt? Hvað er þetta fólk að gera ennþá á þingi? Hvernig þessi hjarðdýr hlaupa undir bagga með sínum fyrrverandi formanni í algerri málefnaleysu segir allt sem segja þarf of ábyrgðartilfinningu og raunsæi þessara manna og kvenna. Eigum við enga rúmlega normalgreinda menn í Sjálfstæðisflokknum, hægri menn sem eru ekki á eigin forsendum í flokknum eða sem ekki voru annaðhvort þingmenn, ráðherrar eða aðstoðarmenn ráðherra þegar samfélagið var keyrt í þrot með röð heimskulegra ákvarðana og raunveruleikafirringar? Er engin nýliðun af hæfu fólki?
|
Gæti kollvarpað fjármálalífinu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2009 | 10:24
Naívistar á hægri kantinum
Það eru líklega allir að elta yfirstjórn Seðlabankans fyrir léleg vinnubrögð og ósamhæfða hagstefnu. Um þetta eru allir helstu hagfræðingar heimsins sammála nema þessir "Snillingar" sem sátu í stjórn Seðlabankans meðan gjörningurinn var framinn eða eiga eitthvað undir Davíð komið.
En að gefinni þeirri bókfærðu staðreynd að Davíð og hans hirð hafi sett þjóðina á hausinn verður að dæma ummæli Halldórs "Naive" og Halldór Blöndal þannig "Hægri Naívista."
|
Yfirlýsingar jaðra við einelti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2009 | 11:21
Farðu langt og vertu lengi
![]()
Farðu langt Davíð og vertu lengi. Þjóðin er búin að elta þig í blindni á meðan þú hefur gert hana gjaldþrota og illa liðna hjá nágrönnum. Ef einhver sómatilfinning er eftir hjá þínum ráðgjöfum þá eiga þeir að benda þér á staðreyndir Economics 101 og kunnir þú að hlusta þá sérðu hvað þú átt sök á.
|
Vildu lækka vexti en ekki IMF |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.12.2008 | 16:01
Why don´t they eat cookies?
Það fer að vera svipuð nálægð Íslenskra stjórnmálamanna og Frönsku konungsfjölskyldunnar við þegna sína og umbjóðendur. Þorgerður Katrín gæti auðveldlega leikið Marie Antoniettu en hver á að leika Lóðvík 16? Davíð?
|
Ekki hægt að taka inn nýnema |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt 6.1.2009 kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)


malacai
andres
sigrunb
hallarut
hannesgi
kolgrimur
hrannarb
skodunmin
nonniblogg
leifurl
robertb
vitaminid
veffari
vefritid
hanoi
chinagirl