Færsluflokkur: Bloggar

Naívistar á hægri kantinum

Það eru líklega allir að elta yfirstjórn Seðlabankans fyrir léleg vinnubrögð og ósamhæfða hagstefnu.  Um þetta eru allir helstu hagfræðingar heimsins sammála nema þessir "Snillingar" sem sátu í stjórn Seðlabankans meðan gjörningurinn var framinn eða eiga eitthvað undir Davíð komið.

En að gefinni þeirri bókfærðu staðreynd að Davíð og hans hirð hafi sett þjóðina á hausinn verður að dæma ummæli Halldórs "Naive" og Halldór Blöndal þannig "Hægri Naívista."


mbl.is Yfirlýsingar jaðra við einelti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Farðu langt og vertu lengi

clown.jpg

Farðu langt Davíð og vertu lengi.  Þjóðin er búin að elta þig í blindni á meðan þú hefur gert hana gjaldþrota og illa liðna hjá nágrönnum.  Ef einhver sómatilfinning er eftir hjá þínum ráðgjöfum þá eiga þeir að benda þér á staðreyndir Economics 101 og kunnir þú að hlusta þá sérðu hvað þú átt sök á.


mbl.is Vildu lækka vexti en ekki IMF
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Why don´t they eat cookies?

adolf_hitler_11.jpg

Það fer að vera svipuð nálægð Íslenskra stjórnmálamanna og Frönsku konungsfjölskyldunnar við þegna sína og umbjóðendur.  Þorgerður Katrín gæti auðveldlega leikið Marie Antoniettu en hver á að leika Lóðvík 16?  Davíð?


mbl.is Ekki hægt að taka inn nýnema
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það vantar "heimsku" í þetta

 

Þetta er alveg rétt hjá Uffe, sönnunargagnið er kreppan hérna en það vantar "frekja, hroki og heimska" til að loka hringnum hjá okkur því kapítalistar eiga að vera frekir og hrokafullir en stjórnmálamenn ekki heimskir.  Kannski eru stjórnmálamennirnir okkar líka frekir og gráðugir og hafa heimska embættismenn sér og sínum til eftirlits og þá gerist líka þetta, kreppa.


mbl.is Frekja og hroki aðgangsorð íslenska helvítisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rassastærð

Verðum við ekki að fara að velja fólk í lögguna eftir höfuðlagi en ekki rassastærð?
mbl.is Sýknaður af ákæru fyrir peningafölsun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til sýnis á Lækjartorgi

skuldir_barnanna_copy.jpg

Það á að safna þessum sökudólgum saman, úr bönkum, Ríkisstjórn og eftirlitsstofnunum, stilla uppá sérsmíðaðan pall á Lækjartorgi, fólki til sýnis, þeim til háðungar og börnunum okkar til aðvörunar.  Ekki ólíkt og við gerum uppí Svínahrauni þar sem við stillum upp klesstum bíl með tölu látinna í umferðarslysum líðandi árs.  Umburðarlyndi er eitt og svo heimska á eigin kostnað og sinna nánustu annað.


mbl.is Lét flytja út af reikningum FL án heimildar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Teljum afglöp Davíðs

clown.jpg

Af hverju gerir ekki einhver sagnfræðingur birgðaskráningu á atburðum sem hafa komið upp kringum Davíð frá því hann kom í embætti?  Það fyrsta sem ég man eftir var að hann ætlaði að setja upp sorphreinsistöð uppí Árbæ og kallaði Árbæinga sveitalubba þegar þeir mótmæltu.  Svo hætti Davíð við allt saman þegar hann sá að KókaKólaverksmiðja var við hliðina á ætlaðri sorpeyðingastöð og gosdrykkjarframleiðandinn hótaði að flytja starfsemina.  Á milli öskuhauganna í Árbæ og eldsins sem Davíð hefur kveik í Íslensku efnahagslífi er langur listi uppátækja og deilna sem þjóðin á skilið að sjá.


mbl.is Sigurður: Lenti illilega saman við Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað með það

Voru frakkar að skrifa um háhýsið okkar í Smáranum?
mbl.is Fyrsta háhýsi Parísar í 30 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

er þetta rangt eða hvað?

Hvernig voru spurningarnar settar fram og hvernig var unnið úr þeim?
mbl.is Telja eðlilegt að útlendingar séu með lakari laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rakel var áttræð skv. biblíunni

Hún getur ekki verið mjög bókstafstrúar því Abraham og Rakel áttu barn þegar frúin var áttræð?
mbl.is Nítjánda barnið kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband