18.11.2007 | 23:51
Sorglegt
Þetta á líklega eftir að aukast þegar hægt er að kaupa Vodka á bensínstöðvum og í Bónus. Þá geta allir sem vettlingi geta valdið drukkið án þess að hafa áhyggjur af því að komast í Ríkið innan strangs opnunartíma. Svo held ég að við ættum að leyfa sölu skotvopna á bensínstöðvum líka svo þessum hnífsstungum linni og menn fari nú bara að skjóta hvorn annan einsog í Texas.
|
Lagði til vinnufélaga síns með hnífi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


malacai
andres
sigrunb
hallarut
hannesgi
kolgrimur
hrannarb
skodunmin
nonniblogg
leifurl
robertb
vitaminid
veffari
vefritid
hanoi
chinagirl
Athugasemdir
Smá áfengi er meinhollt. En það þykir mér svoldið furðuleg öfugmæli að selja áfengi á bensínstöðvum, ekki beint hægt að keyra eftir slík kaup. Svoldið eins og að selja sælgæti á tannlæknastofum, eða hvað?
veffari, 19.11.2007 kl. 22:07
Auðvitað eigum við ekki að selja brennivín á bensínstöðvum frekar en sjálfvirkar skammbyssur.
K Zeta, 20.11.2007 kl. 00:08
Það sem ég hef að segja við þessum pistli er nú bara eitt: Hvað er með þetta Selfoss "place". Selfoss er í frétt um alla daga og það vegna glæpa, nauðgana og brjálaðra löggæslu. Er eitthvað í vatninu eða er það uppgufuninn frá Ölfusá.
Halla Rut , 21.11.2007 kl. 00:23
Held að Sulphonium (brennisteinn) í loftinu auki að svona svallhegðun. Allavega er talað um brennisteinslykt í helvíti og þar er fólk ekki að syngja Passíusálma.
K Zeta, 21.11.2007 kl. 16:32
Ég sá í sölutjaldi í Plovdiv í Búlgaríu að það var verið að selja Flugelda, Áfengi og Skotvopn, allt í sama tjaldinu. Ég varð þó ekki var við neina drukkna menn með byssur að skjóta upp flugeldum .
Hlynur Jón Michelsen, 22.11.2007 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.