1.5.2007 | 13:07
Nauðsynlegt fyrir ferðamenn
Eru 500 milljónir mikið eða lítið? Hvernig getur maður myndað sér skoðanir á því hvað þetta ætti eða mætti kosta? Sýnist þetta vera svipað og hallinn á RÚV árlega sem ekkert verður er gert útaf. Vonandi gera menn þessa ferju af myndaskap og metnaði því Grímsey er framtíðar ferðamannaparadís.
Kostnaður við breytingar á Grímseyjarfjerju yfir 500 milljónir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Enginn að tala um að 500 millur sé mikið fyrir ferju en það er mikið að eyða svoleiðis upphæð í breytingar á gömlu skipi þegar nýtt kostar álíka mikið!!!!!
H. Vilberg (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 14:28
Þekki málið ekki nægilega og hef síður vit á hvað skip kosta en efast um að þú fáir merkilegan dall fyrir 500 milljónir?
K Zeta, 1.5.2007 kl. 14:51
Það kemur fram í fréttinni sem þú vitnar í að það myndi kosta 7- 800 milljónir að láta smíða nýtt .
H. Vilberg (IP-tala skráð) 1.5.2007 kl. 15:31
Líklega í Kína en þá missum við útúr landi þessa þekkingu sem við viljum hafa í landinu, að smíða og laga skip, og einhverjir embættismenn myndu þurfa að dvelja langtímum saman í Kína og fylgjast með framkvæmdinni sem myndi hlaupa á tugumef ekki hundruðum milljóna.
K Zeta, 1.5.2007 kl. 16:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.