18.11.2007 | 23:51
Sorglegt
Þetta á líklega eftir að aukast þegar hægt er að kaupa Vodka á bensínstöðvum og í Bónus. Þá geta allir sem vettlingi geta valdið drukkið án þess að hafa áhyggjur af því að komast í Ríkið innan strangs opnunartíma. Svo held ég að við ættum að leyfa sölu skotvopna á bensínstöðvum líka svo þessum hnífsstungum linni og menn fari nú bara að skjóta hvorn annan einsog í Texas.
Lagði til vinnufélaga síns með hnífi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Smá áfengi er meinhollt. En það þykir mér svoldið furðuleg öfugmæli að selja áfengi á bensínstöðvum, ekki beint hægt að keyra eftir slík kaup. Svoldið eins og að selja sælgæti á tannlæknastofum, eða hvað?
Ólafur Þórðarson, 19.11.2007 kl. 22:07
Auðvitað eigum við ekki að selja brennivín á bensínstöðvum frekar en sjálfvirkar skammbyssur.
K Zeta, 20.11.2007 kl. 00:08
Það sem ég hef að segja við þessum pistli er nú bara eitt: Hvað er með þetta Selfoss "place". Selfoss er í frétt um alla daga og það vegna glæpa, nauðgana og brjálaðra löggæslu. Er eitthvað í vatninu eða er það uppgufuninn frá Ölfusá.
Halla Rut , 21.11.2007 kl. 00:23
Held að Sulphonium (brennisteinn) í loftinu auki að svona svallhegðun. Allavega er talað um brennisteinslykt í helvíti og þar er fólk ekki að syngja Passíusálma.
K Zeta, 21.11.2007 kl. 16:32
Ég sá í sölutjaldi í Plovdiv í Búlgaríu að það var verið að selja Flugelda, Áfengi og Skotvopn, allt í sama tjaldinu. Ég varð þó ekki var við neina drukkna menn með byssur að skjóta upp flugeldum….
Hlynur Jón Michelsen, 22.11.2007 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.