30.11.2007 | 13:20
Opinber trú
Vesalings Frú Gibbons og vesalings fólkið í Súdan. Á meðan opinberir herir Súdans drepa eigin þegna í þúsundavís sitja allir heima en þegar dúkka er kölluð Muhameð verður allt vitlaust. Það er sem ég hef sagt fyrr, trú á ekki að vera opinber eða í höndum ríkisins, reynslan hefur sýnt okkur þetta í áraþúsundir en kennt okkur lítið. Fögnum því framtaki Þorgerðar Katrínar að taka einhliða trúarkennslu útúr grunnskólum landsmanna.
Krefjast aftöku Gibbons | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Konan átti líka að vita betur og hafa vit á því að vera ekki að "testa" þolmörkin í þessu harðlínulandi. Kannski líka spurning hvað henni gengur til í upphafi að starfa þarna sem kennari, þekkjandi mennningu landsins og fólksins.
K Zeta, 1.12.2007 kl. 10:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.