Exel og

banker

Auðvitað er engin kreppa hérna á Íslandi heldur löngu tímabær leiðrétting á offari banka og sparisjóða, sérstaklega í óhugsuðum lánum til fasteigna, hvort sem er nýbygginga eða notaðs húsnæðis.  Það verður að segjast sem er; hvernig í ósköpunum gat þrjúhundraðþúsund manna þjóð sem að stórum meirihluta býr og starfar kringum einn þéttbýliskjarna ekki lagt saman hvað hún er að veita í nýbyggingar og hver áætluð þörfin sé.  Ég held að fólk í bönkum landsins mætti rifja upp reikniforritið Exel og skipunina "Sum (above)"  Maður gerir minni kröfur til ábyrgðar sveitastjórnarmanna (saga Reykvíkinga undafarna mánuði kennir fólki það) sem þátt tóku í vitleysu bankanna og okruðu út lóðir hægi, vinstri, heldur en til "hagfræði"- lærðra  bankastarfsmanna sem hafa keyrt hagkerfið útí tóma vitleysu.  Það að hafa byggt íbúðir til rúmlega tveggja ára segir allt um gæði þeirrar vinnu sem bankarnir voru að inna af hendi að undarförnu.  Það þarf ekki annarra vitna við.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband